Í fyrri greinum hef ég fjallað um sérkenni Vesturlandabúa, einkum sér í lagi íbúa Norðvestur-Evrópu, og þá óvenju sterku einstaklingshyggju sem einkennir samfélagsgerð þeirra.
Furðulegasta fólk í heimi
Árið 2020 kom út áhugaverð bók sem bar titilinn The WEIRDest People in the World, eftir mannfræðingin og Harvard prófessorinn Joseph Henrich, sem setti fram ögrandi kenningu um að Vesturlandabúar væru sérkennilegustu menn í sögu mannkyns.
Í umfjöllun minni um bókina The WEIRDest People in the World, eftir mannfræðinginn og Harvard prófessorinn Joseph Heinrich, var reifað hvernig ættarbönd á Vesturlöndum eru veikari en annars staðar, ungt fólk yfirgefur foreldrahús snemma, hjón stofna til eigins heimilis og hvernig einstaklingurinn er síður skilgreindur út frá stöðu innan fjölskyldu eða ættar. Sama mynstur birtist einnig í hugarfari Vesturlandabúa sem leggja óvenju mikla áherslu á sjálfstæði einstaklingsins, persónulega ábyrgð og rétt einstaklingsins til að haga lífi sínu eftir eigin höfði. Vesturlandabúar sýna jafnframt mekt traust til ókunnugra og krefjast þess að sömu reglur gildi um alla óháð stétt og stöðu.
Að mati höfundar lýsir orðið einstaklingshyggja þessu fyrirbæri aðeins að hluta þar sem Vesturlandabúar leggja, jú, ofuráherslu á frelsi einstaklingsins en á sama tíma virðast þeir óðfúsir til að steypa einstaklinga í sama félagslega mótið og beita náunga sinn sterkum hópþrýstingi, og jafnvel harkalegum refsingum, víki þeir frá sameiginlegum reglum og viðmiðum sem gilda í vestrænu samfélagi.
Getur einstaklingshyggja og hóphyggja farið saman?
Mögulega liggur hluti svarsins í því að þetta eru ekki andstæðir pólar heldur tvær hliðar á sama félagskerfi. Í fyrri greinum rakti ég hvernig rætur einstaklingshyggju Vesturlanda kunna að liggja djúpt í sögu Norður-Evrópubúa: á meðal evrópskra veiðimanna þar sem einkvæni var vistfræðileg nauðsyn og þar sem sjálfstæði einstaklingsins var samofið gagnkvæmni, orðspori og samvinnu til að lifa af við harkalegar aðstæður.
Uppruni Evrópumanna
Hér verður stiklað á stóru um uppruna Evrópubúa. Tilgangurinn með svo víðfeðmri yfirferð er að sporna við þeirri tilhneigingu fræðimanna að líta á sögu Evrópu sem tímabil sem hófst um 1000 f. Kr. — þar sem okkur er kennt að saga Evrópu hafi byrjað með gullöld Grikklands og risi Rómaveldis. Ríkjandi söguskoðun afskrifar þannig tímann 1000 f. Kr. sem tíma…
Þessi forsögulega grein einstaklingshyggjunnar þróaðist síðan áfram í samfélögum Indóevrópumanna þar sem verðleikar og orðstír urðu hornsteinn samfélagsins og þar sem eiðar og gagnkvæm tryggð bundu ókunnuga menn saman í fóstbræðralög. Arfleifð Indóevrópumanna og evrópskra bændasamfélaga birtist síðar enn skýrar á miðöldum, þar sem einkvæn hjónabönd voru ráðandi fjölskyldumynstur og sjálfstæð heimili urðu megin venja í Norðvestur-Evrópu.
Segja má að þriðji meiður vestrænnar einstaklingshyggju hafi fullþroskast síðar á miðöldum. Kirkjan setti lög sem þrengdi að frændhjónaböndum og úr varð samfélag þar sem einstaklingurinn losnaði enn frekar undan kvöð ættar — en varð um leið hluti af stærra samfélagi óskyldra einstaklinga sem byggðist á trausti þar sem menn fylgdu sameiginlegum reglum og menn drógu hvorn annan til ábyrgðar.
Þessi bræðingur af einstaklings- og hóphyggju verður viðfangsefnið hér þar sem reynt verður að greiða úr flókinni félagsfræði Vesturlanda — samfélaga sem verja sjálfstæði einstaklingsins af hörku, en gera það þó með ströngu félagslegu aðhaldi; ýktri fylgispekt við sameiginlegar reglur og hörðum refsingum gegn þeim sem þær brjóta.
Óeigingjörn refsing og siðferðissamfélög
Greinargóð skýring á þverstæðukenndri samkrullun á einstaklings- og hóphyggju Vesturlandabúa kann að felast í sálfræðilegu fyrirbæri sem fræðimenn skilgreina sem óeigingjörn refsing (e. altruistic punishment). 1 Með hugtakinu er átt við að einstaklingur sé tilbúinn að leggja eitthvað í sölurnar til að refsa öðrum fyrir svik, ósanngirni eða brot gegn sameiginlegum reglum.
Slíkt, undarlegt, atferli Vesturlandabúa var kortlagt skilmerkilega í rannsóknum Josephs Henrich í svokölluðu W.E.I.R.D verkefni; skrautlegri skammstöfun yfir Vesturlandabúa sem stendur fyrir e. western, educated, industrialized, rich, democratic.2
Til að mæla mun á sálfræði ólíkra hópa notaði Joseph Henrich hagfræðilega tilrauna leiki. Slíkir leikir eru þekkt aðferð í hagfræði og upprunalega hannaðir til að mæla þætti eins og traust, sanngirni og samvinnu á mörkuðum. Í samhengi WEIRD verkefnis Heinrich komu slíkir leikir að góðu gagni við að kortleggja hvernig hegðun og ákvarðanataka mótast af styrk ættartengsla. Í óvestrænum samfélögum, þar sem ættartengsl eru sterk og stjórna félagslegum samskiptum, byggist traust og samvinna fyrst og fremst á blóðböndum EN Í einstaklingshyggjusinnuðum WEIRD samfélögum þar sem ættarbönd eru veik, byggist samfélagsgerðin frekar á að fólk geti átt í hnökralausum samskiptum við ókunnuga.
Hagfræðileikir Henrichs eru þannig hannaðir til setja þátttakendur í aðstæður þar sem þeir eiga í nafnlausum samskiptum við ókunnuga þar sem ættarbönd eru engin og afhjúpa þannig hvort; sálfræði þeirra er löguð að samfélagi blóðbanda eða samfélagi þar sem treysta þarf bláókunugu fólki.

Úrslitaleikurinn (e. The Ultimatum Game)
Tilraun: Í þessum leik eru tveir þátttakendur þar sem einn (bjóðandi) fær ákveðna upphæð af peningum og á að bjóða hinum þátttakandanum (viðtakanda) hlutdeild. Ef viðtakandinn samþykkir tilboðið, skiptist upphæðin milli þeirra samkvæmt. Ef viðtakandinn hins vegar hafnar tilboðinu, fá báðir núll. Út frá algjörlega eigingjarnri sérhyggju ætti viðtakandinn að samþykkja allar upphæðir stærri en núll, þar sem eitthvað er alltaf meira en ekkert. Út frá slíkum forsendum ætti því eigingjarn bjóðandi að bjóða minnstu mögulegu upphæð hverju sinni.
Niðurstöður: Hegðun þátttakenda sýndi skýran menningarlegan mun. Einstaklingar frá Vesturlöndum buðu að jafnaði sanngjarnan hlut — um 50 prósent. En þegar Vesturlandabúar voru í hlutverki viðtakanda og var boðið minna en 30 prósent, þá höfnuðu þeir oftast tilboðinu og fórnuðu þar með raunverulegum ágóða. Hjá þátttakendum úr samfélögum utan Vesturlanda var mynstrið hins vegar gjörólíkt; þar voru tilboðin almennt mun lægri, og það sem mestu skiptir er; að viðtakendur höfnuðu nánast aldrei lágum tilboðum.
Túlkun: Þótt sú hegðun Vesturlandabúa að hafna ókeypis peningum sé tæknilega séð órökrétt, virkar hún sem „óeigingjörn refsing“ (e. altruistic punishment) — það er, sálfræðileg viðbrögð sem knýja einstaklingshyggjusinnað fólk til að refsa þeim sem sýna ósanngirni eða eru „afætur“ (e. free-riders) á kerfi þar sem sömu reglur eiga að gilda um alla — jafnvel þótt refsingin kosti þau sjálf. Vesturlandabúar gera því há tilboð í upphafi vegna þess að þeir gera ráð fyrir að ókunnugir muni refsa þeim ef þeir sýna græðgi. Þessi niðurstaða er ágætt líkan af félagslegri einstaklingshyggju Vesturlanda; hún sýnir að Vesturlandabúar hafa þróast í umhverfi þar sem samskipti við ókunnuga eru normið, sem krefst þess að fólk sýni sanngirni og örlæti til að vernda eigið orðspor upp á framtíðarsamskipti.
Einræðisleikurinn (e. The Dictator Game)
Tilraun: Þessi leikur breytir reglunum þannig að möguleikinn á refsingu er fjarlægður. Í einræðisleiknum ákveður bjóðandinn algjörlega einhliða hversu miklu hann vill deila með viðtakanda, en viðtakandinn hefur ekkert um málið að segja og getur ekki hafnað tilboðinu.
Niðurstöður: Jafnvel þegar hættan á höfnun og refsingu var ekki lengur til staðar, héldu vestrænir þátttakendur áfram að sýna ýkt örlæti og buðu að meðaltali 48 prósent af upphæðinni. Íbúar úr samfélögum utan Vesturlanda gáfu aftur á móti umtalsvert minna (15-25%) og sýndu því almennt mun minni vilja til samvinnu.
Túlkun: Einræðisleikurinn sýnir að örlæti WEIRD fólks gagnvart ókunnugum er djúpstæður hluti af sálfræði Vesturlanda, en ekki einungis yfirborðskennd viðbrögð við yfirvofandi möguleika á refsingu.
Meðal þess lærdómsríkasta sem kom í ljós í leikjunum var hvernig ólíkir menningarheimar bregðast við refsingum. Ef Vesturlandabúum er refsað fyrir ósanngirni leiðrétta þeir hegðun sína og sýna meira örlæti í næsta leik, jafnvel þótt þeir viti að þeir muni eiga í samskiptum við nýja og nafnlausa þátttakendur. Þátttakendur úr samfélögum utan Vesturlanda eru hins vegar mun líklegri til að bregðast við refsingu með hefnd — fremur en aukinni samvinnu.3
Einstaklingshyggja hvað?
Við fyrstu sýn virðist slík samvinna, fórnfýsi og [óeigingjörn] refsigleði gagnvart [sjálfstæðum] ákvörðunum annara harla einstaklingshyggja. En í samfélagi þar sem samskipti byggjast ekki á ættarböndum er það traust gagnvart ókunnugum sem er forsenda hnökralausa samskipta. Traust gagnvart ókunnugum er mögulegt ef það ríkir sátt um að svik hafa afleiðingar. Refsing, traust og gagnkvæmni haldast þannig í hendur. Aukið svigrúm einstaklingsins á Vesturlöndum er því mögulegt vegna þess að flestir [einstaklingar] hlýða og framfylgja almennum reglum.
Orðstír um að maður sé bæði sanngjarn og fylgin almennum reglum styrkir stöðu manns innan slíks samfélags — og góður orðstír virðist hafa gegnt mikilvægu félagslegu hlutverki í Evrópu, allt frá jökultíma veiðimanna, til víkinga, fram á okkar daga:

Norður vs. Suður
Hagfræðileikir Henrichs endurspegla einnig niðurstöður rannsókna á samfélögum evrópskra veiðimanna á ísöld. Fornleifa -og mannfræðingurinn Clive Gamble hefur fjallað um hvernig samvinna var lífsnauðsyn í smærri, og hreyfanlegum, samfélögum veiðimanna á ísöld þar sem miðstýrt félagslegt aðhald var vistfræðilega takmarkað:
Félagshyggja evrópskra veiðimanna var ólík þeirri hóphyggju sem þróaðist í frjósama hálfmánanum. Í Miðausturlöndum var fæðuöryggi meira þar sem menn gátu safnað matvælum árið um í kring, á meðan lífsskilyrði á víðfeðmum túndrum Evrasíu voru báglegri — sem gerði það að verkum að samvinna var veiðimönnum nauðþörf en á sama tíma vóru hæfileikar hvers og eins líka nýttir til fullnustu til að tryggja afkomu hópsins.4
Harkalegt vistkerfi ísaldar kom þannig í veg fyrir myndun stórra ættbálkasamfélaga en ættbálkahyggja (e. tribalism) var, og er, meginstoð í félagsfræði Miðausturlanda og Asíu — þar sem blóðtengsl ákvarða félagslega niðurröðun og þar sem fáir einstaklingar gátu sankað að sér auðæfum og drottnað yfir hópnum.5

Í samfélögum veiðimanna urðu því orðspor, gagnkvæmni og viðbrögð hvers og eins mikilvæg stjórntæki til að halda uppi samheldni. Sjálfstæði einstaklingsins fól ekki í sér algjört frelsi frá hópnum: Einstaklingurinn hafði mekt athafnafrelsi, en það frelsi var háð því að hann stæði við skuldbindingar sínar gagnvart sameiginlegu siðferðiskerfi og varðveitti orðspor sitt innan samfélagsins.
Siðferðissamfélag
Fræðimenn skilgreina samfélag sem byggist á slíkum, oft óskrifuðum, siðferðisreglum sem siðferðissamfélag (e. moral community): samfélag tiltölulega sjálfstæðra einstaklinga sem lúta ekki persónulegu valdi ættarhöfðingja heldur byggja frekar á sameiginlegum reglum og þar sem einstaklingar draga hvorn annann til ábyrgðar. Slíkt samfélag þarf því ekki að velja milli einstaklingshyggju og hóphyggju. Það getur veitt einstaklingum mikið frelsi í eigin lífi en á sama tíma beitt náunga sinn hópþrýsting þegar hann fer út fyrir þau siðferðilegu mörk sem samfélagið hefur skilgreint.67
Refsingar við brotum siðferðissáttmálans geta svo falið í sér saklausar leiðréttingar eins og hornaugu og baktal eða harkalegri viðbrögð eins og líkamlegar refsingar eða slaufun. Í óblíðu vistkerfi á ísöld var slaufun frá hópnum viss dauðdagi.8

Tilurð og þróun siðferðissamfélaga (e. moral communities) í Evrópu kann einnig að skýra hvers vegna vestræn menning virðist hafa verið óvenjulega útsett fyrir hinum svokallaða vókisma og slaufunarmenningu undanfarinna ára.
Norræn einstaklingshyggja
Fáir gera eflaust athugasemd við greiningu mína um að einstaklingshyggja sé ýkt á Vesturlöndum en margir munu hins vegar furða sig á því þegar ég segi að einstaklingshyggja sé ýktust á Norðurlöndum. Það kann að hljóma einkennilega þar sem Norðurlönd eru oft orðuð við hóphyggju sem einkennist af hárri samneyslu og stórum velferðarkerfum með tilheyrandi skattheimtu á einstaklinga.
Norræn saga
Til að skýra hvers vegna norræn einstaklingshyggja er sterk er gott að byrja á að setja Skandinavíu í sögulegt samhengi. Eins og áður var reifað hafði óvenjulegt fjölskyldumynstur í Norðvestur-Evrópu myndast þá og þegar á miðöldum: Ungt fólk yfirgaf foreldrahús snemma, giftist seint og hjón stofnuðu eigið heimili í stað þess að verða hluti af einni stórfjölskyldu undir sama þaki.

Sagnfræðingarnir Lars Trägårdh og Michael Roberts hafa fjallað um hvernig þessi þróun hafi gengið lengst í Skandinavíu. Þar virðist stétt sjálfstæðra bænda hafa verið óvenju sterk þar sem lénsskipulag og bændaánauð náðu ekki sömu fótfestu og sunnar í álfunni. Trägårdh, Roberts o.fl. telja að þessi óvenjulega þróun í átt til eigin forræðis skýringu á því hvers vegna leiguliði var í norrænni stjórnskipunarhefð talinn sinn eigin maður og naut tiltölulega sjálfstæðrar stöðu gagnvart landeiganda.91011
Einnig er verðugt að drepa á hugleiðingum sagnfræðingsins Erik Gustaf Geijer um hvernig norræn menning varðveitti indóevrópska hefð um takmarkað konungsvald. Geijer færir sannfærandi rök fyrir að norrænn konungur hafi ekki verið einvaldur heldur fremstur meðal jafningja og að vald hans hafi markast af lögum, samráði og gagnkvæmum skyldum gagnvart þegnum sínum.12
Þegar konungur gekk of langt rann blóð norræna manna til [indóevrópskar] skyldu þar sem menn gátu gengið úr ríki konungs, numið ný lönd og stofnað nýtt samfélag. Landnám Íslands er líklega elsta sögulega dæmið um slíka landnemamenningu (e. frontierism) þar sem frelsisþrá, sjálfsbjargarviðleitni og andóf við ofríki mótaði nýtt samfélag utan seilingar konungs.

Norræn einstaklingshyggja á sér þannig djúpar sögulegar rætur í samfélagsgerð þar sem sjálfstætt heimilishald, persónuleg ábyrgð og sjálfstæði einstaklingsins hafði meira vægi en annars staðar í Norður-Evrópu.
Norrænn nútími
Eins og áður sagði, þá líta Norðurlönd kannské út eins og hóphyggjusinnuðustu samfélög veraldar; þar sem umfangsmikið ríkisvald og velferðarkerfi heimta stóran hluta tekna einstaklinga til að færa inn í sameiginlega sjóði. Út frá hefðbundnum pólitískum ás frá hægri til vinstri er því auðvelt að túlka norræna módelið sem sigur hóphyggju yfir einstaklingshyggju. En þegar maður skoðar hvað kerfið gerir, fremur en að einblína á hvernig kerfið er fjármagnað, blasir við önnur mynd:
Í Skandinavíu hafa opinberar, og ópersónulegar, stofnanir tekið að sér stóran hluta þess félagslega hlutverks sem áður hvíldi á fjölskyldu og ætt. Menntun, heilbrigðisþjónusta, lífeyrir, og félagsleg aðstoð veita einstaklingnum öryggi og stuðning án þess að hann þurfi að reiða sig á foreldra, börn, systkini eða ættingja. Burtséð frá skoðun manns á gagnsemi norræna módelsins þá bendir þetta til að megintilgangur kerfisins sé að frelsa einstaklinginn undan kvöð ættar.
Tilgangur norræna velferðarríkisins felst þannig að verulegu leyti í að gera einstaklinginn óháðan öðrum þar sem hóp-og einstaklingshyggja hvarfast saman í velferðarkerfi, sem hópurinn fjármagnar, sem snýst um að hámarka frelsi hvers og eins í hópnum. Norræna velferðarríkið gengur þannig ekki í berhögg við einstaklingshyggju per se heldur stendur þvert á móti vörð um persónulegt sjálfstæði einstaklingsins í krafti ríkisumsvifa.

Norrænar þjóðir mælast einnig hæst allra þjóða í félagslegu trausti og leggja ýkta áherslu á sjálfsákvörðun, jafnrétti og rétt einstaklingsins til að haga eigin lífi. Á sama tíma eru fjölskyldutengsl veik þar sem einstaklingar reiða sig síður á ættingja vegna framfærslu, atvinnu eða félagslegs öryggis. Í stað fjölskyldutengsla treysta norrænir menn á innviði, sem samfélagið fjármagnar, og síðast, en ekki síst, á að ókunnugir samferðamenn fylgi sömu reglum og þeir sjálfir.
Jantelögin
Eitt af því sem einkennir norræn samfélög er krafa um að einstaklingar sýni hófsemi innan hópsins. Í Svíþjóð er talað um Jantelögin; óskráð regla um að einstaklingar eigi ekki að hefja sig yfir aðra, sýna of mikinn metnað eða láta mikið á sér bera. Þótt hugtakið sé sænskt lýsir það kunnuglegu samfélagsmynstri á Norðurlöndum og er ein af mörgum birtingarmyndum félagslegrar samleitni og hópþrýstings í Norður-Evrópu.
Í hnotskurn má segja að á Norðurlöndum megi finna furðulegustu (WEIRDest) samfélög jarðar. Hinn norræni maður er af miklu leyti öfgakenndur einstaklingshyggjumaður sem lifir jafnframt í sterkasta siðferðissamfélagi (e. moral community) á Vesturlöndum — samfélagi þar sem hópurinn leggur allt kapp á að gera einstaklinginn óháðan öðrum með því að frelsa;
fátæka frá betli
konur frá eiginmönnum sínum
börn frá foreldrum sínum
aldraða [foreldra] frá börnum sínum
Burtséð frá hvort norræn velferð sé góð eða slæm hugmyndafræði þá virðist hlutverk norræna módelsins miðast við að draga úr áhrifamætti ættar á örlög einstaklingsins.
hóphyggja eða HÓPHYGGJA?
Þegar talað er um hóphyggju í Evrópu er hugtakið oft tengt sterku ríki, háum sköttum og umfangi opinberrar þjónustu. Sé sjónarhornið fært út fyrir Evrópu birtist önnur, og gerólík, gerð af hóphyggju þar sem fjölskyldan, ættin, klíkan, trúar-eða þjóðernishópurinn er megin félagslega einingin.
Óvestræn hóphyggja
Í óvestrænum samfélögum stendur einstaklingurinn sjaldnar einn og sér gagnvart samfélaginu. Staða hans, skyldur og réttindi ráðast að verulegu leyti af hópnum sem hann tilheyrir: hverra manna og hvaða þjóðerni hann er, og hvaða tengslanet standa honum að baki. Hollusta og gagnkvæmar skyldur fylgja þannig blóðtengslum og reglur eru ekki þær sömu gagnvart öllum þar sem skyldur gagnvart bróður, ættingja eða manneskju af sama þjóðerni eða kynþætti vega þyngra en gagnvart ókunnugum.1314
Þarna liggur meginmunurinn á óvestrænni hóphyggju og þeirri ópersónulegu samfélagsskipan sem er ríkjandi í Norður-Evrópu, þar sem lög og réttindi eiga að gilda jafnt um alla — burtséð frá skattkerfi.
Af þeim sökum skýrir hinn hefðbundni vinstri–hægri ás vestrænna stjórnmála minna um þennan grundvallarmun en oft er ætlað. Báðar fylkingar, frá vinstri til hægri, stjórnmálaflokka á Vesturlöndum ganga út frá því að einstaklingurinn sé sjálfstæður borgari og flestir flokkar vinna markvisst að almennum réttindum og ópersónulegum lögum þar sem deilan snýst fyrst og fremst um ýmis smáatriði hvernig því kerfi skuli háttað.
Vestræn hóphyggja
Ef kalla ætti vestræna samvinnumenningu hóphyggju þá er ljóst að hún er gerólík og byggist á allt öðrum forsendum en hóphyggja utan Vesturlanda. Ólíkt hóphyggju í Miðausturlöndum og Asíu þá byggst vestræn samheldni ekki á ætt, frændsemi og persónulegri hollustu heldur á sameiginlegum hugmyndum um lög, sanngirni og rétta hegðun. Í stað ættbálkavalds, sem skipuleggur samfélagið að ofan, þá myndar vestrænni hópurinn ómiðstýrt siðferðissamfélag (e. moral community) sjálfstæðra einstaklinga. Menn eiga að standa á eigin fótum, en fylgja jafnframt sömu reglum, og draga hvorn annan til ábyrgðar.
Það skýrir að hluta hvers vegna sterk einstaklingshyggja Vesturlanda getur runnið undan sterkri samvinnumenningu þar sem félagslegum aga er haldið uppi með ströngu félagslegu regluverki, siðferðisviðmiðum — og jafnvel hörðum refsingum fyrir þann sem fer út fyrir viðurkennd mörk.
Þjóðhverfa hvað?
Eins og áður kom fram virðast óvestrænir hópar almennt þjóðhverfari (e. ethnocentric) en vestrænir. Sú mynd er þó ekki alveg rétt. Vesturlandabúar eru fyllilega færir um þjóðhverfu en hún birtist — enn og aftur — á afar sérkennilegan máta:
Vesturlandabúar leggja, jú, ríka áherslu á að sömu reglur gildi um alla og beita hópþrýsting og refsingu til að framfylgja reglunum. Hængurinn er hins vegar að téð framfylgni beinist fyrst og fremst að eigin hópi: Vestrænir menn gera ríkustu kröfurnar til síns eigin fólks og refsa því harkalega þegar það víkur frá viðteknum normum — en hundsa, og jafnvel fagna, þegar aðrir óvestrænir hópar, sem búa í vestrænum samfélögum, fylgja öðrum reglum sem forgangsraða skyldum gagnvart skyldmennum umfram heildina.
Vesturlandabúi getur til dæmis brugðist mjög hart við þegar annar Vesturlandabúi gerir ætt, þjóðerni eða uppruna að grundvelli pólitískrar samstöðu, en sýnt sambærilegri þjóðernislegri hóphyggju minnihlutahóps umburðarlyndi eða jafnvel stutt hana. Hin óhlutbundna regla um jafnræði verður þannig að siðferðilegri skyldu sem vestrænni einstaklingurinn leggur fyrst og fremst á sjálfan sig og sitt eigið fólk en hundsar brot á sameiginlegum reglum þegar útlendingar eiga í hlut.
Forvitnilega sögulega hliðstæðu má sjá meðal Gota á fjórðu öld.15 Aþanarík Gotakonungur ríkti og réð yfir fjölbreyttum hópi þjóða sem voru ekki germanskar eins og Gotar:
Þjóðflokkar sem Aþanarík hafði mannaforráð yfir voru Dakar, Sarmatar, Taifalar, oflr., sem voru kristinnar trúar en sjálfur Aþanarík var strangheiðinn. Aþanarík var einnig þekktur fyrir að ofsækja kristna menn en hængurinn er að ofsóknir Aþanaríks beindust nær eingöngu gegn Gotum. Þegar Gotar tóku kristni og yfirgáfu trú forfeðranna, refsaði Aþanarík þeim harkarlega með píningum og dauða — en á sama tíma lét Aþanarík aðra [kristna] hópa í friði. Aþanarík einblíndi þannig á að refsa fyrst og fremst eigin mönnum fyrir að víkja frá sameiginlegum sið en lét aðra kristna, og útlenda, menn, undir hans stjórn, í friði.
Samantekt
Norðvestur-Evrópa er vissulega óvenju einstaklingshyggjusinnuð, en einstaklingurinn stendur ekki einn heldur er það hópurinn sem tryggir sjálfstæði einstaklingsins með því að standa vörð um sameiginlegar og ópersónulegar siðferðisreglur. Sjálfræði hvers og eins hvílir á trausti, ópersónulegum stofnunum, sameiginlegum reglum og vilja hópsins til að refsa þeim sem brjóta reglurnar — oft á eigin kostnað.
Einstaklingshyggja og hóphyggja á Vesturlöndum eru því ekki andstæður. Hópurinn ver sjálfræði einstaklingsins með fylgispekt við algildar reglur og einstaklingurinn treystir á hópinn til að halda þeim reglum uppi.
Þarna ku vera komin ástæða fyrir því að við eigum erfitt með að sjá hversu sérstök menning okkar er í raun og veru. Algilding siðferðisviðmiða er svo mikilvægur og ómissandi hluti af vestrænu siðferðiskerfi að Evrópumenn túlka eigin áherslu á sjálfræði, algildar reglur og ópersónulegt réttlæti sem sjálfsagt og algilt siðferði — fremur en sérstök menningar-og sálfræðileg sérkenni vestrænna manna.
Umræða
Að mati höfundar er óeigingjörn refsing (e. altruistic punishment) afdrifaríkasta einkenni vestræns mannkyns og jafnframt sú félagslega skuldbinding sem gerir traust milli ókunnugra mögulegt í vestrænu samfélagi: Menn geta átt viðskipti, unnið saman og farið eftir ópersónulegum lögum vegna þess að menn eru tilbúnir að refsa hvorum öðrum fyrir brot gegn sameiginlegum reglum — jafnvel þó refsingin krefjist fórnar og þó enginn ætthöfðingi standi að baki á þeim sem refsar. Á þessum grunni hvílir félagslegt traust Norðvestur-Evrópu.
Sama félagslega skuldbinding getur þó snúist upp í andhverfu sína — sérstaklega á tímum þegar þjóðum Evrópu er ógnað af átroðningi óvestrænna innflytjenda. Þegar krafa um algildar reglur og refsingu við fráviki verður mikilvægari en velferð eigin þjóða, hættir siðferðissamfélagið raunverulega að verja einstaklinginn og krefst þess í stað fórnar af honum — oft fyrir úreltar dyggðir sem þjóna ekki lengur upprunalega tilgangi sínum.
Nýlegt dæmi úr einkalífi höfundar sýnir hversu langt þetta getur gengið:
Vinur höfundar stendur í að semja við eiginkonu sína um hvort dóttir þeirra eigi að sækja opinberan skóla eða annan, minna fjölbreyttan, einkaskóla í Danmörku. Í opinbera skólanum er bekkurinn mjög fjölbreyttur þar sem ofbeldi er þekkt vandamál. Móðirin vill engu að síður að stúlkan sæki opinbera skólann. Ástæðan er, að móðirinn hafi sjálf sótt slíkan skóla þar sem hún hafi, jú, vissulega orðið fyrir einelti og ofbeldi af hálfu krakka frá Afríku og Miðausturlöndum — en það hafi engu að síður verið henni dýrmæt reynsla: Þar hafi hún lært að fóta sig í flóknum samskiptum og áttað sig á að þær reglur sem henni sjálfri þættu æskilegar væru ekki endilega þær sem hentuðu öllum. Með því að vinna úr árekstrum hafi hún smám saman áttað sig á þeim sameiginlegu leikreglum sem gera fólki kleift að lifa saman.
Önnur dæmi um hvernig óeigingjörn refsing tekur á sig skaðlega mynd er Rotherham hneysklið þar sem breskir embættismenn bældu niður umræðu um nauðgunargengi í nafni fjölmenningar á kostnað fórnarlamba — eða stýrur í íslenska kvennaathvarfinu sem dreifa falsupplýsingum um afbrotatíðni útlendinga til að draga úr “útlendingaandúð” á kostnað þolenda — og svo lengi mætti telja.1617
Stríð í Evrópu sýna einnig hversu langt slík félagsleg skuldbinding getur náð þegar hún er virkjuð í stórum stíl. Hugsjónir Evrópumanna um hvað felst í frelsi, réttlæti og fýsilegri samfélagsskipan hafa lengi verið uppspretta deilna og blóðugra styrjalda. Evrópumenn hafa barist sín á milli um réttustu túlkunina á pólitískum hugsjónum og fórnað mannslífum í massavís fyrir réttinn til að framkvæma þær í verki. Nærtækt dæmi er fyrsti dagur orrustunnar við Somme, í fyrri heimsstyrjöldinni, 1. júlí, 1916 þar sem féllu 58.000 breskra hermanna á einum degi — sem er 13 sinnum fleiri hermenn en fórust í Írakstríðinu á tíu árum.
Bretar héldu áfram að sækja fram að vetri og misstu 420.000 manns til viðbótar. Frakkar misstu 200.000; Þjóðverjar misstu hálfa milljón. Sem þýðir að yfir sex mánaða tímabil týndu meira en milljón menn lífi til að refsa andstæðingi sínum og standa vörð um rétta túlkun á sameiginlegu regluverki samfélagsins. Það sem sker í augun er að næstu, og síðustu, tvö ár stríðsins hélt urmull ungra manna áfram að bjóða fram líf sitt í skotgrafirnar.18
Slík fórnfýsi verður ekki skýrð með ættarhollustu, eins og hún þekkist í þriðja heiminum, heldur út frá viðmiðum siðferðissamfélags (e. moral community) þar sem orðstír, sameiginlegar skyldur og óeigingjarn vilji til að refsa svikurum — og þola refsingu sjálfur — vega þyngra en líf einstaklingsins.
Tvíeggjuð fyrirbæri
Óeigingjörn refsing, slaufun og samviska Evrópumanna eru í sjálfu sér hvorki góð né slæm fyrirbæri að upplagi. Þetta eru félagsleg stjórntæki sem stýra hegðun, viðhalda sameiginlegum reglum og hafa átt ríkan þátt í að gera Vesturlönd farsæl. Hvort þau leiða til góðs eða ills ræðst af því hvernig þeim er beitt, í hvaða umhverfi, og hvaða markmiðum þau þjóna.
Það fer harla fram hjá athugulum lesendum að í algleymi hins svokallaða vókisma hafi sömu öfl og styrkja samvinnu og samheldni orðið tæki kúgunar, útilokunar og ofsókna. Skýringin á því kann að felast í lýðfræðilegum breytingum og hvað gerist í vestrænum samfélögum þegar óvestrænir útlendingar, með gjörólík gildi, komast í snertingu við sér-vestræn gildi um traust, samvinnu, og félagslega samvisku. Því er ekki að undra að öfl óvinveitt vestrænni menningu grípi til þess ráðs að snúa Evrópubúum gegn sjálfum sér og virki tilhneigingu okkar til samviskubits með að sannfæra okkur um siðferðilega annmarka eigin þjóða.
Erfðaþátturinn
Það dylst engum sem kannast við skrif undirritaðs að ég tel skýringu á menningarmun felast að verulegu leyti í erfðafræðilegum mismun milli hópa. Það er í sjálfu sér ekkert róttækt við þá afstöðu. Með tilliti til þróunarkenningar Darwins, og vísindagrundvallar nútíma líffræði, þá mælir einfaldlega heilbrigð skynsemi fyrir um að flest sem snýr að líffræði mannsins eigi sér erfðafræðilegan grunn — fyrir neðan háls og ofan. Á síðustu árum hafa svo erfðarannsóknir einnig bent til þess að þróun mannlegra eiginleika hafi verið bæði nýleg og hröð. Þar má meðal annars nefna rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar19 sem og Reich-rannsóknarstofunnar við Harvard20 sem benda til nýlegs náttúruvals á fjölmörgum eiginleikum á síðustu árþúsundum — meðal annars þáttum sem tengjast vitrænni getu, skapgerð og persónuleikaeinkennum eins og samviskusemi.21
Jafnvel þótt þú hafnir erfðafræðilegum skýringum höfundar þá breytir það litlu um niðurstöðuna. Ef menning er niðurrenningur umhverfisáhrifa ættum við að sjá innflytjendur samlagast vestrænum viðmiðum á fáeinum kynslóðum. Ef við rýnum í gögn þá er niðurstaðan ekki sérlega uppörvandi hvað það varðar. Danskar afbrotatölur hafa ítrekað sýnt að afbrotatíðni er ekki aðeins há meðal fyrstu kynslóðar innflytjenda frá Miðausturlöndum heldur enn hærri meðal annarrar kynslóðar.22 Rannsóknir Algan og Cahuc benda í sömu átt og sýna að vantraust og óvestræn gildi flytjist milli kynslóða innflytjenda og haldist óbreytt í margar kynslóðir eftir búferlaflutninga.23 Hvort menn vilja skýra slíka menningarlega fasta með erfðum eða menningu er í sjálfu sér aukaatriði. Niðurstaðan er sú sama: þær sálfræðilegu forsendur sem gera vestræn samfélög möguleg virðast hvorki flytjast yfir með farteski né verða til með inngildingu.
Í draumi sérhvers manns er fall hans falið
Vandi Vesturlanda stafar af því að sérstaða Vesturlanda er ítrekað rangtúlkuð sem fyrirmyndarsamfélag alls mannkyns fremur en einstök og erfðafræðileg afurð tiltekinnar menningar og sálfræði. Þegar slík sérstaða er álitin algild og sjálfsögð hættir fólk að spyrja hvers konar menningu og — nánar tiltekið — menn þarf til þess að halda uppi vestrænni sérstöðu.
Tálvon vestrænna manna um að allir hópar séu eins tálmar heilbrigða skynsemi þar sem menn neita að horfast í augu við erfðafræðilegan fjölbreytileika mannkyns til að takast á við áskoranir samtímans. Í stað óþæginlegra sanninda grípa spekúlantar beggja vængja til úreltra kenninga. Hægrimenn leita í klassíska frjálslyndisstefnu, vinstri menn í Marx, í von um að leysa fjölmenningarvandann. Þessar kenningar skýra þó ekkert um það hvers vegna óvestrænir innflytjendur virðast ekki samlagast vestrænu samfélagi og skila í raun litlu, eða gera illt verra, þar sem þær salta umræðuna og fresta úrlausn vandans meðan við fljótum sofandi að feigðarósi.
„Þekktu sjálfan þig“ (Γνῶθι σαυτόν) — orð letruð á vegg í fordyris hofs Apollons í Delfí.
Á tímum þar sem þjóðfélög okkar hanga á bláþræði vegna ágangs óvestrænna útlendinga skiptir máli að Evrópumenn hlýði véfréttinni frá Delfí — sérstaklega menntamenn og menn sem koma að stefnumótun til framtíðar.
Ástandið mun bara versna meðan Evrópumenn loka augunum fyrir þeirri staðreynd að það er ekki á allra færi að viðhalda þeim einstöku siðferðisviðmiðum sem halda uppi vestrænu samfélagi; veik ættarbönd, traust, ópersónuleg lög og óeigingjörn refsing eru EKKI algild einkenni mannkyns. Evrópumenn þurfa að opna augun og skilja að atgervi þeirra er sérstakt og einstakt á heimsvísu.
Úrelt greiningartæki duga skammt. Sá sem túlkar vestræna samvinnu sem hóphyggju ættbálks, eða norræna velferð sem sigur ættar yfir einstaklingnum, misskilur bæði hlutverk hópsins og einstaklingsins í vestrænu samfélagi. Hóphyggja Vesturlanda hvarfast ekki um ætt, klíkur eða trúflokka. Vestræni hópurinn er siðferðissamfélag sjálfstæðra manna sem hefur mótast yfir tugþúsundir ára við einstök og harkaleg skilyrði. Að gera ráð fyrir að óvestrænir hópar geti ættleitt einstaka arfleifð vestrænnar menningar, sísvona, án þess að sömu forsendur séu fyrir hendi, er skaðleg óskhyggja.
Ef við missum sjónar á því hver við erum og hvaðan við komum tapast skilningurinn á því hvað kerfið þolir og hvað það þolir ekki — og ef við leyfum því að gerast verða leikslokin vond. Lækkandi fæðingartíðni og stjórnleysi í útlendingamálum hafa þrýst vestrænum þjóðum á ystu þröm eyðingar og vestrænar hugsjónir um frelsi, jafnrétti og lýðræði munu brátt hverfa í fyrndina ef ekkert verður að gert.
Þróunin verður hvorki stöðvuð né snúið við fyrr en við áttum okkur loks á að vestrænt siðfræði er einstakt, erfðafræðilegt og krefst vandlegrar stjórnunar í hnattvæddum heimi.
G.
Mýrasýsla, 2026
Robert Boyd og Peter J. Richerson, „Punishment Allows the Evolution of Cooperation (or Anything Else) in Sizable Groups“, Ethology and Sociobiology 13, nr. 3 (1992): 171–195.
Joseph Henrich, The WEIRDest People in the World: How the West Became Psychologically Peculiar and Particularly Prosperous (New York: Farrar, Straus and Giroux, 2020).
Henrich, The WEIRDest People in the World, bls. 135–138, 214–220 og 291–294.
Clive Gamble, „Interaction and Alliance in Palaeolithic Society“, Man 17, nr. 1 (1982): 92–107, https://doi.org/10.2307/2802103.
Holý, Ladislav. Kinship, Honour, and Solidarity: Cousin Marriage in the Middle East. 1989.
Jonathan Haidt, „The Bright Future of Post-Partisan Social Psychology“ (fyrirlestur á ársþingi Society for Personality and Social Psychology, San Antonio, Texas, 27. janúar 2011).
Geoffrey Miller, The Mating Mind: How Sexual Choice Shaped the Evolution of Human Nature (New York: Doubleday, 2000).
Christopher Boehm, Hierarchy in the Forest: The Evolution of Egalitarian Behavior (Cambridge, Massachusetts: Harvard University Press, 1999).
Lars Trägårdh, „Statist Individualism: The Swedish Theory of Love and Its Lutheran Imprint“, í Between the State and the Eucharist: Free Church Theology in Conversation with William T. Cavanaugh, ritstj. Joel Halldorf og Fredrik Wenell (Eugene, Oregon: Pickwick Publications, 2014), 13–38.
Michael Roberts, Essays in Swedish History (London: Weidenfeld & Nicolson, 1967).
Michael Mitterauer, Why Europe? The Medieval Origins of Its Special Path, þýð. Gerald Chapple (Chicago: University of Chicago Press, 2010).
Erik Gustaf Geijer, „Feudalism and Republicanism“, í Freedom in Sweden: Selected Works of Erik Gustaf Geijer, ritstj. Björn Hasselgren, þýð. Peter C. Hogg (Stokkhólmur: Timbro, 2017).
Ronald Inglehart og Pippa Norris, „Muslim Integration into Western Cultures: Between Origins and Destinations“, HKS Faculty Research Working Paper Series, nr. RWP09-007 (Harvard University, 2009).
Kajuju Murori, „Just Like Corruption, Nepotism Also Strains Africa’s Growth“, The African Exponent, 27. júní 2016.
E. A. Thompson, The Visigoths in the Time of Ulfila (Oxford: Clarendon Press, 1966).
Carole Malone, „Rotherham Sex Abuse: How Can Fear of Being Branded Racist Be Worse Than the Safety of Youngsters?“, Daily Mirror, 27. ágúst 2014.
John Keegan, The First World War (New York: Vintage, 2000).
Augustine Kong o.fl., „Selection against Variants in the Genome Associated with Educational Attainment,“ Proceedings of the National Academy of Sciences 114, nr. 5 (2017): E727–E732.
Ali Akbari o.fl., „Ancient DNA Reveals Pervasive Directional Selection across West Eurasia,“ Nature 654 (2026): 419–428.
Ted Schwaba o.fl., „Robust Inference and Correlates from Genetic Associations with Personality“, Nature, 2. september 2026.
Danska Hagstofan, „Innflytjendur frá MENAPT mun líklegri til að fremja glæpi,“ Viðskiptablaðið, 28. febrúar 2024
Yann Algan og Pierre Cahuc, „Inherited Trust and Growth,“ American Economic Review 100, nr. 5 (2010): 2060–2092.








