Íslenskt samfélag hefur breyst mikið á síðastliðnum aldarfjórðungi og þróast úr einsleitu samfélagi í misleitt fjölmenningarsamfélag. Spurningin er hins vegar hvort Íslendingar átti sig á raunverulegri stöðu mála í dag og hver þróunin verður í framtíðinni. Algengt er að upplýsingar um þessar stærðir séu ónákvæmar og að umræður og spár um lýðfræðilega þróun byggi ekki á traustum sögulegum gögnum.
Því ákveðum við að rýna í gögn Hagstofu Íslands og varpa ljósi á hvernig mannfjöldi Íslands gæti þróast eftir bakgrunni og kyni ef þróun síðustu ára heldur áfram sem horfir.
Til að gögnin séu læsileg og að lesandinn geti sjálfur skoðað útreikningana ræðum við ekki aðeins niðurstöðurnar hér heldur einnig aðferðina á bak við þær, og eru jöfnurnar sem líkanið notar útskýrðar jafnóðum og þær koma við sögu í textanum. Einnig fylgir Excel-skjal með útreikningunum okkar og öllum tölum með grein okkar á opinaugu.is
Tölur nú þegar
Fyrst er rétt að líta á tölur sem þegar liggja fyrir. Gögnin byggja á töflu MAN43000 hjá Hagstofu Íslands, sem sýnir mannfjölda eftir bakgrunni, kyni og aldri1. Til að gera niðurstöðurnar læsilegri brjótum við þessa flokka niður í þrjá meginhópa. Stærsti hópurinn er íbúar án erlends bakgrunns, sem við köllum innfædda Íslendinga hér framvegis til að einfalda textann. Næststærsti hópurinn eru innflytjendur. Þriðji hópurinn samanstendur af öllum hinum flokkunum sem við köllum annað. Þessi hópun er frábrugðin þeirri flokkun sem stundum sést í almennri umræðu eða á vettvangi eins og Wikipedia2 og virkar sem vinnuflokkun fyrir okkar líkan.
Auk þessara þriggja hópa notum við tvískiptingu sem gefur einfaldari heildarmynd: Íslendinga annars vegar og útlendinga hins vegar. Til Íslendinga teljum við íbúa án erlends bakgrunns, þau sem fæðast á Íslandi með annað foreldri erlent og þau sem fæðast erlendis en eiga íslenskan bakgrunn (báðir foreldrar fæddir á Íslandi). Til útlendinga, það er fólks með erlendan bakgrunn, teljum við innflytjendur, aðra kynslóð innflytjenda (fædd á Íslandi, báðir foreldrar innflytjendur) og þau sem fæðast erlendis með annað foreldri erlent. Skiptingin byggir á fæðingarlandi og fæðingarlandi foreldra en ekki ríkisfangi, og er vinnuflokkun okkar en ekki opinber flokkun Hagstofunnar. Íslendingar í þessum skilningi eru stærri hópur en innfæddir Íslendingar hér að ofan, því þeir ná einnig yfir þau sem eiga annað foreldri erlent eða eru fædd erlendis með íslenskan bakgrunn.
Tölfræðin nær yfir tímabilið 1996 til 2026. Þessir flokkar sýna miklar sveiflur en árin í kringum fjármálahrunið og kórónuveirufaraldurinn skera sig sérstaklega úr.
Heilt á litið hefur hægt á fjölgun í hópi innfæddra Íslendinga. Skýringuna er að finna í öldrun þess hóps og lækkandi fæðingatíðni. Í kjölfar hrunsins fækkaði fólki í þessum hópi vegna flutnings úr landi, en á kórónuveirutímanum varð aukningin meiri en mæld þróun gaf til kynna. Hópurinn sem við flokkum sem annað hefur stækkað jafnt og þétt, sérstaklega á síðustu árum. Sú aukning drífst aðallega af annarri kynslóð innflytjenda, þar sem stærri hluti innflytjenda hefur fest rætur á Íslandi til lengri tíma og stofnað fjölskyldur.
Það hefur varla farið fram hjá neinum að innflytjendum hefur fjölgað mikið. Rétt fyrir aldamót, árið 1999, voru innflytjendur 7.594 talsins á Íslandi. Árið 2026 voru þeir orðnir 77.226, sem er meira en tíföld fjölgun. Fjölgunin var hlutfallslega mest á árunum fyrir hrun. Eftir hrun dró úr fjöldanum þar til aftur varð aukning um árin 2014 og 2015. Síðan þá hefur vöxturinn verið mikill, með tímabundinni hægingu árin 2020 til 2021. Mesta fjölgun á einu ári mældist milli 2022 og 2023, þegar innflytjendum fjölgaði um 9.109. Það er ekki tilviljun að þessi tala kemur aftur fyrir síðar í greininni, líkanið notar töluna sem sögulegt hámark þegar það áætlar hversu mikið árleg fjölgun innflytjenda gæti haldið áfram að vaxa. Síðustu ár hefur dregið úr árlegri fjölgun, en hún er enn vel yfir meðaltali sögulega tímabilsins, og mikilvægt er að benda á að samkvæmt nýjustu tölum frá þjóðskrá hefur erlendum ríkisborgurum fækkað það sem er af árinu 20263.

Samkvæmt búferlaflutningatölum Hagstofunnar hafa fleiri en 10.000 manns flust til landsins á hverju ári síðan 2013, og sum ár yfir 20.000. Á móti hafa fleiri en 10.000 manns flutt frá landinu á hverju ári síðan 2016, þar á meðal Íslendingar sem flytja utan eða snúa aftur heim eftir dvöl erlendis. Nettóáhrifin, sá vöxtur sem stendur eftir í hópi innflytjenda þegar allt er talið, eru þau sem fjallað er um hér að ofan.
Ef tekið er meðaltal af árlegri aukningu innflytjenda síðan 2014 (að frátöldu 2021 vegna Covid-frávika) fæst 4.343 manna fjölgun á ári. Sé miðað við 2018 í stað 2014 (einnig að frátöldu 2021) er meðaltalið 5.262 á ári. Það er töluvert meira en 1% þjóðarinnar í aukningu að meðaltali á ári, bara í hópi innflytjenda. Á sama tíma hefur meðalaukning meðal þeirra með engan erlendan bakgrunn verið 756 manns á ári síðan 2014 (að frátöldu 2022). Sá hópur fjölgar sér mun hægar, og samkvæmt spánni í Kafla 3 mun hann taka að fækka innan við áratug frá nú. Sem dæmi um það hve hægt hann vex má nefna að milli 2025 og 2026 fjölgaði honum um aðeins 331 manns.
Tvískiptingin í Íslendinga og útlendinga sýnir sömu þróun í einni tölu. Árið 1996 voru útlendingar 7.755 talsins, eða 2,9% landsmanna. Árið 2026 eru þeir 91.060, eða 23,1%, en Íslendingar eru 303.264 (76,9%). Fjöldi útlendinga hefur því nær tólffaldast á þrjátíu árum og hlutur þeirra í mannfjöldanum nær áttfaldast.
Gögn Hagstofunnar sýna jafnframt að nú þegar eru 6.221 fleiri karlkyns en kvenkyns innflytjendur á Íslandi: 41.711 karlar á móti 35.490 konum, sem þýðir að karlar eru um 17,5% fleiri en konur í hópnum og 54,0% innflytjenda. Þetta hefur ekki alltaf verið svona. Árið 1996 voru konur rúmlega 62% innflytjenda (3.333 konur og 2.024 karlar), og hlutfall karla hefur sveiflast mikið síðan, eins og sést á Mynd 6 í Kafla 3.
Áhrifin sjást í mannfjöldanum í heild. Árið 1996 voru karlar og konur nánast jafn mörg á Íslandi (134.224 karlar og 133.585 konur, munur upp á 639), en árið 2026 eru karlar 202.181 og konur 191.927, eða 10.254 fleiri karlar (að auki eru 216 einstaklingar skráðir kynsegin/annað). Karlar eru þá 51,3% landsmanna en aðeins 50,5% í hópi innfæddra Íslendinga. Þar sem lýðfræðileg breyting fylgir að miklu leyti aðfluttu vinnuafli þýðir þessi skekkja að breytingin á aldurssamsetningu eftir bakgrunni gengur að jafnaði hraðar fyrir sig meðal karla en kvenna í sömu árgöngum, atriði sem vert er að hafa í huga þegar árgangatölurnar í Kafla 3 eru skoðaðar, þar sem þær eru ekki kynjaskiptar.
Aðferð og samanburður við Hagstofuna
Þörfin á nýju mannfjöldalíkani skapast af því að opinberar sviðsmyndir greina mannfjöldaþróunina sjaldnast niður á bakgrunn íbúa. Án þeirrar skiptingar endurspegla spárnar ekki fullyrðanlega raunveruleikann eins og hann er í dag, þar sem nær öll nettófjölgun samfélagsins á sér stað í öðrum hópum en hjá þeim sem eru án erlends bakgrunns.
Sögulegur gagnagrunnur og árgangaraðferðin
Sögulegu gögnin eru fjöldi fólks eftir ári, aldri og bakgrunni. MAN43000-taflan er miðuð við stöðu mannfjöldans 1. janúar ár hvert og nær yfir 1996–2026. Líkanið notar árin 2014–2026 til að meta nýlega þróun, nær núverandi samfélagi en eldri ár, og árið 2021 er ekki látið vega eins og venjulegt ár, því ferðatakmarkanir og óvenjuleg búferlaflutningamynstur á þeim tíma geta skekkt samanburðinn. Árið 2026 er notað sem staðfest grunnár.
Líkanið fylgir hverjum fæðingarárgangi eftir aldri. Fyrir hvern aldur a og bakgrunn b er reiknaður framvindustuðull sem sýnir hvernig fjöldi hópsins hefur að jafnaði færst frá einum aldri yfir á þann næsta milli ára:
Nt,a,b er fjöldi fólks á aldri a árið t í bakgrunnshópi b · T eru árin 2014–2020 og 2022–2025 (2021 undanskilið) · wt er vægi ársins, þar sem nýrri ár vega þyngra (frá um 0,45 fyrir 2016 upp í 1,15 fyrir 2025).
Stuðullinn er hlutfall veginnar summu næsta árs og veginnar summu fyrra árs, sem dregur úr áhrifum einstakra sveiflna, sérstaklega þegar lítill hópur er skoðaður. Hann er nettótala sem sameinar í eina stærð áhrif aðflutnings, brottflutnings, dauðsfalla og breytinga á skráðum bakgrunni. Þess vegna getur stuðullinn verið hærri en 1: það þýðir einfaldlega að hópurinn stækkaði milli ára eftir að allar þessar breytingar hafa verið teknar saman. Vinnubókin birtir þar af leiðandi ekki hreina dánartíðni eftir bakgrunni, því stuðullinn aðgreinir ekki þessa þætti hvern fyrir sig.
Fyrir aldur 0–109 er árgangurinn svo færður áfram með grunnjöfnunni:
Til dæmis verður fjöldi 23 ára innflytjenda árið 2026 að fjölda 24 ára innflytjenda árið 2027 með margföldun með viðeigandi framvindustuðli. Fyrir elsta aldurshópinn, 110 ára og eldri, sameinast þeir sem koma inn í hópinn og þeir sem voru þegar í honum: Nt+1,110,b = Nt,109,b·R109,b + Nt,110,b·R110,b.
Tvö atriði þarf að bæta við. Stuðull frá 0 til 1 árs er aldrei hærri en 1,8. Og stuðlarnir eru ekki notaðir óbreyttir allt spátímabilið: sá hluti þeirra sem er yfir 1 dvínar smám saman með veldisfalli, frá fyrsta spáári. Sú aðferð er skýrð seinna en hún gildir líka um tíu ára spána og er því hluti af öllum tölum í greininni.
Varúðarleiðrétting fyrir innflytjendur
Hráir framvindustuðlar innflytjenda eru lækkaðir lítillega með föstum stuðli:
Stuðulinn, 0,986, er varúðarleiðrétting, ekki náttúrulögmál. Hann breytir ekki stefnu þróunarinnar og gerir ekki ráð fyrir ákveðinni lokatölu, en áhrifin safnast smám saman upp þegar hann er notaður ár eftir ár. Tilgangur hans er að draga úr hættu á að hrá nýleg þróun haldi áfram óbreytt og leiði til of hás innflytjendafjölda.
Að auki er árlegri fjölgun innflytjenda haldið undir mjúku efri viðmiði sem byggir á hæstu nýlegu fjölguninni, 9.109 manns, breytingin milli 2022 og 2023 sem fjallað var um í Kafla 1, án þess að nota hana sem fast markmið. Viðmiðið, A, er 78% af þessu hámarki:
Ef hrá fjölgun er lægri en þetta viðmið er hún látin standa óbreytt. Fari hún yfir viðmiðið er leyfð fjölgun reiknuð með veldisfalli sem byrjar rólega að draga úr fjölguninni og nálgast söguleg hámark hana án þess að festa hana nákvæmlega við 9.109:
Fari hrá útkoma yfir leyfða fjölgun er öllum aldurshópum innflytjenda skalað með sama hlutfalli, svo aldurssamsetning innflytjenda haldist í sömu hlutföllum en heildaraukningin dragist niður á jafnan hátt. Nýfæddir eru þó reiknaðir sér og eru ekki skalaðir. Í tíu ára spánni nær hrá fjölgun aldrei viðmiðinu (hún er mest 6.812 manns á ári), þannig að þakið hefur ekki áhrif á hana. Það kemur aðeins við sögu í langtímasviðsmyndinni, á árunum 2039–2043.
Nýir 0 ára árgangar
Nýfæddir, eða 0 ára, eru ekki fengnir með því að færa eldri árgang yfir á næsta aldur, þeir eru reiknaðir sérstaklega. Heildarfjöldi 0 ára byggir á staðfestri stöðu 2026 og sögulegri þróun í fjölda 0 ára:
g er metinn meðalvöxtur (u.þ.b. −0,38% á ári, sem er nánast flatt) · d = 0,88 er dempunarstuðull sem lætur nýlega breytingu í fjölda 0 ára hafa minni áhrif eftir því sem lengra er spáð, allt spátímabilið til 2050 · h = y − 2026. Grunnurinn miðast við fjölda fólks sem er skráð 0 ára í mannfjöldagögnum en ekki beina talningu á fæðingum ársins.
Hlutdeild bakgrunnshópa meðal þessara nýju 0 ára barna byggir á þremur þáttum: staðfestri hlutdeild árið 2026, sögulegri þróun hlutdeildarinnar, og upplýsingum um konur á aldrinum 15–49 ára eftir bakgrunni. Fyrir leiðbeinandi frjósemisútreikning er notað:
Wb,y er fjöldi kvenna 15–49 ára í hópi b · qb er notuð fæðingatíðni: 1,78 fyrir viðmiðunarhópinn án erlends bakgrunns, og 1,12 fyrir aðra bakgrunnshópa4. Þessar tölur eru ekki notaðar til að reikna beinan fjölda barna, þær eru veik leiðbeining um hvernig bakgrunnshlutdeild nýrra barna gæti þróast.
Í líkaninu vegur staðfest 2026-skipting þyngra en frjósemisleiðréttingin. Upphafshlutdeild framtíðarinnar er í meginatriðum:
þar sem S er staðfest hlutdeild úr 2026-gögnum og F er frjósemisleiðrétt leiðbeining. Þróun hlutdeilda notar síðan 75% eigin sögulegrar 0 ára þróunar og 25% frjósemisleiðréttrar þróunar. Til að tryggja að allar bakgrunnshlutdeildir leggist saman í 100% er notað lograhlutfall (log-ratio) hvers hóps miðað við viðmiðunarhópinn, sem er síðan framreiknað línulega og að lokum umbreytt aftur í hlutdeildir með einni fjölvíðri softmax-aðferð, þetta tryggir að engin hlutdeild verði neikvæð og að summan verði alltaf 100%.
Kynjaskipting spárinnar
Kynjaskiptingin byggir á sömu töflu, MAN43000, þar sem hver árgangur og bakgrunnshópur er einnig skiptur eftir kyni. Heildarfjöldinn í hverjum árgangi og bakgrunnshópi kemur alltaf úr líkaninu hér að ofan; kynjaskiptingin ákvarðar aðeins hve stór hluti er karlar. Þess vegna leggjast karlar og konur alltaf saman í sömu heildartölur og áður, 462.904 árið 2036 og 554.958 árið 2050.
Til að finna hlutfall karla eru framvindustuðlar metnir sérstaklega fyrir karla og konur, með sömu árum og sömu vægi og áður, en fyrir fimm ára aldursbil í stað eins árs því annars yrðu fámennir hópar of sveiflukenndir. Kynleiðréttingarstuðull φ er hlutfall stuðuls kynsins og stuðuls beggja kynja í aldursbilinu:
k er kyn (karlar eða konur) · β er fimm ára aldursbil · b er bakgrunnshópur · stuðlarnir eru metnir með sömu formúlu og Ra,b hér að framan.
Þar sem gögnin eru fá er φ dreginn í átt að 1, og sá togkraftur er meiri eftir því sem mannárin eru færri:
n er veginn fjöldi mannára kynsins í aldursbilinu og bakgrunnshópnum (Σ w·N) · κ = 1.000 · stuðull hvers aldurs, kyns og bakgrunns er lokastuðull líkansins × φ*, dempaður á sama hátt og aðalspáin.
Hlutfall karla meðal nýfæddra er metið úr 0 ára börnum árin 2014–2026, um 51,7% í heildina, og nota fámennustu hóparnir hlutfall allra hópa. Karlar og konur eru síðan framreiknuð með þessum stuðlum og hlutfall karla af körlum og konum, m, notað á heildarfjöldann úr líkaninu:
Kynsegin/annað (216 manns árið 2026, eða 0,05%) er of fámennt til að hægt sé að spá fyrir um það sérstaklega. Það er sýnt í sögulegum tölum en frá 2027 er það talið með körlum og konum í hlutfalli við fjölda þeirra.
Aðferðin framlengir sögulegt mynstur: hún gerir ráð fyrir að karlar og konur flytjist til landsins og frá því í svipuðum hlutföllum og undanfarin ár. Breytist samsetning aðflutnings, til dæmis með fleiri fjölskyldusameiningum, breytist kynjaskiptingin líka.
Samanburður við spá Hagstofunnar
Helsta opinbera mannfjöldaspáin kemur frá Hagstofu Íslands5. Þar er gert ráð fyrir að aðfluttir umfram brottflutta (nettóafli) fari minnkandi með hverju ári og jafnist út í hóflegra sögulegt meðaltal. Einnig gerir miðspá Hagstofunnar ráð fyrir hærri fæðingafjölda en rauntölur síðustu ára sýna, gert var ráð fyrir um 4.700 til 4.800 fæðingum á ári á árunum 2025–2026, á meðan raunverulegur árlegur fæðingafjöldi hefur verið nær 4.300 börnum um nokkurt skeið.
Þrátt fyrir þessar ólíku forsendur, þar sem okkar líkan gerir ráð fyrir meiri aðflutningi en færri fæðingum, enda báðar spárnar á tiltölulega svipuðum heildarfjölda til næstu tíu ára:
Líkan okkar: gerir ráð fyrir 462.904 íbúum árið 2036.
Spá Hagstofunnar: gerir ráð fyrir 469.184 íbúum árið 2036
Heildartölurnar liggja því innan við 1,5% frá hvor annarri. Meginmunurinn á módelunum liggur hins vegar ekki í því hversu mörg við verðum, heldur hverjir munu fylla þennan heildarfjölda.
Með því að takmarka meginspá okkar við tíu ára glugga (til ársins 2036) fæst mun meiri tölfræðileg fullvissa. Spár sem teygja sig áratugi lengra fram í tímann hvíla á ótryggari grunni, en tíu ára gluggi gefur raunhæfar niðurstöður sem unnt er að styðjast við í samfélagslegri áætlanagerð.
Útkomuspár og framtíðarsviðsmyndir
Til að leggja mat á framtíðarþróun mannfjölda á Íslandi sýna niðurstöður líkansins tvær meginmyndir: annars vegar tíu ára spá til ársins 2036, sem byggir á traustum sögulegum grunni og veitir raunsæja mynd af næsta áratug, og hins vegar langtímasviðsmynd til ársins 2050, sem dregur upp mynd af því hvert þróunin getur leitt ef fram heldur sem horfir.
Tíu ára spáin (2026–2036)
Tíu ára spá líkansins er meginniðurstaða þessarar greiningar og telst raunsæ miðað við sögulega þróun síðasta áratugar. Með því að miða við stuttan tímaramma eru líkur á meiri háttar kerfisbreytingum, stórkostlegum efnahagsáföllum eða umbyltingu á lagaramma minni, sem gerir niðurstöðurnar traustari.
Samkvæmt líkaninu breytist samsetning þjóðarinnar nokkuð þrátt fyrir að heildarfjöldinn haldist í svipuðum takti og spá Hagstofunnar:
Íbúar án erlends bakgrunns: fara úr 70,9% af heildarmannfjölda árið 2026 niður í 59,9% árið 2036. Heildarfjöldi þessa hóps minnkar ekki snögglega, en vöxturinn staðnar nánast alveg og snýst hægt og bítandi í fækkun vegna lágrar fæðingatíðni og öldrunar árganga.
Innflytjendur: hlutfall þeirra eykst úr 19,6% í 29,5% af heildaríbúafjölda þjóðarinnar á sama tímabili. Það þýðir að tæplega þrír af hverjum tíu íbúum Íslands árið 2036 verða innflytjendur.
Flokkurinn „Annað“: helst í hlutfallslegum stöðugleika miðað við heildina, eða í kringum 9,5% til 10,6%. Þessi hægi vöxtur er eðlilegur, þar sem stór hluti mannfjöldastofnsins breytist hægt þrátt fyrir hærra hlutfall erlends bakgrunns meðal nýfæddra barna.
Íslendingar og útlendingar: hlutfall útlendinga eykst úr 23,1% í 33,9%, eða úr 91.060 í 156.768 manns, en Íslendingar eru nánast jafn margir og áður (303.264 árið 2026 og 306.137 árið 2036). Af þeim 68.580 sem bætast við mannfjöldann eru 65.708, eða 95,8%, útlendingar.
Karlar og konur: karlar verða 242.445 og konur 220.460 árið 2036, eða 21.985 fleiri karlar (52,4% landsmanna), en munurinn er 10.254 í dag. Meðal innflytjenda verða karlar 76.677 og konur 59.939, eða 16.738 fleiri karlar.
Stóra breytingin birtist með skýrustum hætti þegar rýnt er í einstaka fæðingarárganga. Samkvæmt spánni verða íbúar án erlends bakgrunns komnir í minnihluta, undir 50%, í öllum fæðingarárgöngum frá 1992 til 2014 árið 2036.
Innflytjendur einir og sér (án þess að reikna flokkinn „annað“ með) ná hins vegar hvergi hreinum meirihluta í neinum árgangi árið 2036. Sá árgangur sem kemst næst því er fæddur 2003: árið 2026 eru einstaklingar í þeim árgangi 23 ára og hlutfall innflytjenda í hópnum er 26,5%. Árið 2036, þegar sami árgangur verður 33 ára, sýnir líkanið að hlutfall innflytjenda er komið í 49,1%, hækkun um rúm 22 prósentustig á áratug, en enn undir 50% mörkunum.
Langtímasviðsmyndin til ársins 2050
Að spá 24 ár fram í tímann felur í sér mun meiri óvissu. Því er réttara að líta á tölurnar fyrir árið 2050 sem langtímasviðsmynd frekar en nákvæma spá. Sviðsmyndin til 2050 getur raskast vegna breytinga á atvinnulífi, húsnæðismarkaði, innflytjendastefnu eða alþjóðlegum atburðum.
Til að koma í veg fyrir að líkanið reikni óraunhæfar tölur út í geim er notuð sama samfellda aðferð frá 2026 alla leið til 2050, án þess að aðferðin breytist þegar tíu ára spánni lýkur árið 2036: söguleg leitni fær að halda áfram, en vægi hennar dvínar smám saman með veldisfalli. Umframframvinda árganga yfir stuðulinn 1 (þ.e. sá hluti sem veldur raunverulegri fjölgun) er dempuð með tímakvarða sem samsvarar um 50 árum. Þegar R er hærri en 1 er stuðull ársins y:
k = 0,9802 er varðveisla umframframvindu milli ára (jafngildir u.þ.b. 50 ára tímakvarða í veldisfalli). Sama aðferð, tímakvarði upp á 25 ár, varðveisla 0,9608 milli ára, er notuð til að deyfa áhrif nýlegrar leitni í fjölda 0 ára eftir því sem lengra er spáð.
Þessi aðferð er stærðfræðilega jöfn og samfelld. Hún kemur í veg fyrir að sama mikla hlutfallslega aukning margfaldist óbreytt í 24 ár, en lækkar þróunina ekki skyndilega niður í núll. Í langtímasviðsmyndinni er einnig gert ráð fyrir að stærri innflytjendastofn hafi smám saman áhrif á hlutdeild barna með erlendan bakgrunn, sú tenging er viðbótarforsenda líkansins.
Niðurstöður sviðsmyndarinnar fyrir 2050
Heildarmannfjöldi: um 554.958 manns árið 2050. Til samanburðar er háspá Hagstofunnar til 2050 um 561.114 íbúar (3), sviðsmyndirnar tvær eru því um 1,1% frá hvor annarri, þótt talan 561.114 sé eingöngu samanburðarviðmið en ekki fast markmið sem líkanið er stillt á.
Íbúar án erlends bakgrunns: hlutfall hópsins lækkar í um 46,6% af heildarþjóðinni, og er þar með þegar orðið í minnihluta á landsvísu, en það gerðist samkvæmt sviðsmyndinni árið 2046 (sjá Mynd 4).
Innflytjendur: verða um 230.740 manns, eða um 41,6% af mannfjöldanum.
Flokkurinn „Annað“: verður um 11,8% af heildarmannfjöldanum.
Íslendingar og útlendingar: Íslendingar verða 294.717 (53,1%) og útlendingar 260.241 (46,9%). Frá 2026 fjölgar útlendingum um 169.181 en Íslendingum fækkar um 8.547.
Karlar og konur: karlar verða 297.786 og konur 257.172, eða 40.613 fleiri karlar (53,7% landsmanna). Um 59% af fjölguninni frá 2026 eru karlar.
Kynjaskipting innflytjenda: 132.234 karlar á móti 98.505 konum, eða 33.729 fleiri karlar (57,3% innflytjenda), en munurinn er 6.221 í dag.

Árgangar árið 2050
Þegar horft er til ársins 2050 skiptast árgangar landsins í mjög ólíka hópa eftir bakgrunni. Fólk án erlends bakgrunns er samkvæmt sviðsmyndinni í minnihluta, undir 50%, í nær öllum árgöngum fæddum 1986 til 2025, að einum árgangi undanskildum: fæddir 1989 mælast rétt yfir mörkunum, með 50,2%, sem verður að teljast innan skekkjumarka fremur en raunveruleg undantekning.
Meðal þeirra sem ná hreinum meirihluta innflytjenda (yfir 50%, án flokksins „annað“) árið 2050 eru árgangarnir 1992 til 2022, einstaklingar á aldrinum 28 til 58 ára það ár. Þetta er sami kjarni vinnualdursins og í tíu ára spánni, en hann hefur breikkað verulega með lengri tímaramma, enda er þetta aldursbil þar sem aðflutningur erlends vinnuafls vegur þyngst.
Dæmi um hlutfall innflytjenda í einstökum árgöngum árið 2050:
Fædd 1995 (55 ára): 54,2% innflytjendur
Fædd 2000 (50 ára): 56,9% innflytjendur
Fædd 2003 (47 ára): 58,4% innflytjendur
Fædd 2010 (40 ára): 56,3% innflytjendur
Fædd 2015 (35 ára): 60,7% innflytjendur
Fædd 2020 (30 ára): 59,5% innflytjendur
Yngstu börnin árið 2050 og flokkurinn „Annað“
Athygli vekur að meðal nýfæddra barna árið 2050 (0 ára) eru hreinir innflytjendur sjálfir aðeins um 2,9%, en flokkurinn „Annað“ er á móti 43,8%, og 53,4% eiga áfram engan erlendan bakgrunn. Það þýðir að þessi allra yngsti árgangur er samkvæmt sviðsmyndinni áfram í meirihluta án erlends bakgrunns, jafnvel þótt hann sé næstum jafn oft af blönduðum bakgrunni. Þetta skýrist af aðferðinni sem lýst er í Kafla 2: börn sem fæðast á Íslandi af erlendum foreldrum flokkast ekki sjálf sem innflytjendur, heldur sem fólk með erlendan bakgrunn fætt á Íslandi (önnur kynslóð eða blandaður bakgrunnur). Þetta sýnir hvernig stærri innflytjendastofn mótar samsetningu næstu kynslóða öðruvísi en hjá foreldrunum sjálfum, dreift á fleiri flokka fremur en samþjappað í einn. Í tvískiptingunni í Íslendinga og útlendinga falla um 29,3% nýfæddra árið 2050 í hóp útlendinga, en 16,6% árið 2026.
Íslendingar og útlendingar
Tvískiptingin í Íslendinga og útlendinga (sjá Kafla 1) sýnir í einu lagi hve stór hluti mannfjöldans er með erlendan bakgrunn. Árið 1996 voru útlendingar 2,9% landsmanna, árið 2026 eru þeir 23,1% og samkvæmt tíu ára spánni verða þeir orðnir 33,9% árið 2036, eða einn af hverjum þremur. Samkvæmt langtímasviðsmyndinni verða þeir 40% landsmanna árið 2042 og 46,9% árið 2050.
Vöxturinn er því nánast allur í hópi útlendinga. Af þeim 68.580 sem bætast við mannfjöldann til 2036 eru 65.708, eða 95,8%, útlendingar. Fjöldi Íslendinga stendur nánast í stað í tíu ár (303.264 árið 2026 og 306.137 árið 2036), nær hámarki um 2033 í rúmlega 306 þúsund og fer eftir það hægt fækkandi, í 294.717 árið 2050. Útlendingum fjölgar á sama tíma um 169.181 frá 2026 til 2050, sem er meira en öll fjölgun mannfjöldans á tímabilinu (160.634).
Ef við skoðum aðeins innflytjendur og afkomendur þeirra, það er aðra kynslóð innflytjenda (fædd á Íslandi og báðir foreldrar innflytjendur), eru þau samtals 21,7% landsmanna árið 2026. Árið 2036 verða innflytjendur einir og sér 29,5% landsmanna (136.617) og afkomendur þeirra 3,1% (14.264), eða samtals 32,6% (150.881 manns). Árið 2050 verða innflytjendur 41,6% (230.740) og afkomendur þeirra 4,3% (23.858), eða samtals 45,9% (254.598 manns). Að auki verða þau sem fæðast á Íslandi með annað foreldri erlent 4,8% landsmanna árið 2036 og 5,3% árið 2050, en þau teljast til Íslendinga í okkar skiptingu.
Karlar og konur
Kynjaskipting spárinnar sýnir að karlar verða sífellt stærri hluti landsmanna. Árið 1996 voru karlar 50,1% landsmanna, árið 2026 eru þeir 51,3%, og samkvæmt líkaninu verða þeir 52,4% árið 2036 og 53,7% árið 2050. Í fjölda talið eru 10.254 fleiri karlar en konur í dag, 21.985 fleiri árið 2036 og 40.613 fleiri árið 2050, þegar karlar verða 297.786 og konur 257.172.
Skýringin liggur nær alfarið í hópi útlendinga. Meðal Íslendinga er hlutfall karla nánast óbreytt, 50,6% árið 2026 og 50,9% árið 2050. Meðal útlendinga hækkar það úr 53,6% í 55,6% árið 2036 og 56,7% árið 2050, og meðal innflytjenda einna úr 54,0% í 56,1% og 57,3%. Í fjölda talið eru 6.221 fleiri karlar en konur í hópi innflytjenda árið 2026, 16.738 árið 2036 og 33.729 árið 2050 (132.234 karlar á móti 98.505 konum), eða rúmlega fimmfalt fleiri en í dag.
Þessi þróun er þó ekki sjálfgefin. Hlutfall karla meðal innflytjenda hefur sveiflast mikið, eins og myndin hér fyrir neðan sýnir. það var 37,8% árið 1996, fór í 57,5% árið 2007, sem fellur saman við uppsveifluna fyrir hrun, féll í 47,1% árið 2013 og hefur síðan hækkað í 54,0%. Líkanið framlengir nýlegt mynstur og gerir ráð fyrir að hlutfallið hækki hægt upp í 57,3% árið 2050, sem er svipað og hæsta gildi sem hefur mælst en ekki umfram það. Breytist samsetning aðflutnings, til dæmis með fleiri fjölskyldusameiningum, gæti kynjaskiptingin orðið jafnari.
Lokaorð
Þótt meginspá greiningarinnar nái aðeins tíu ár fram í tímann er nauðsynlegt að horfa lengra. Hvernig mun samsetning íslensku þjóðarinnar líta út árið 2050? Við höfum leitast við að varpa ljósi á þá þróun eftir bestu getu. En jafnframt er mikilvægt að horfa enn lengra fram á við: Hvernig gæti samsetning þjóðarinnar litið út eftir 50, 100 eða jafnvel 200 ár ef sömu lýðfræðilegu straumar halda áfram?
Þessum breytingum má líkja við dæmisöguna um Skip Þeseifs. Í þeirri sögu var skipt um eina fjöl í skipinu á hverjum degi þar til á endanum var enginn hluti upprunalegur eftir. Spurningin sem eftir stendur er: Er það þá enn sama skipið? Og ef ekki, á hvaða tímapunkti hætti það að vera það?
Lýðfræðilegar breytingar eru hvorki góðar né slæmar í sjálfu sér, en þær móta framtíðina. Til þess að samfélagið, innviðirnir og menningin geti aðlagast þróuninni af skynsemi þurfum við að þora að rýna í gögnin af raunsæi. Með því að skilja tölurnar og horfa fram á veginn, frekar en að reiða okkur á ónákvæmar upplýsingar, getum við mætt framtíðinni af þekkingu og yfirvegun.6
Hagstofa Íslands, MAN43000 — Mannfjöldi eftir mánuði, kyni, aldri, ríkisfangi og bakgrunni: https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Ibuar/Ibuar__mannfjoldi__3_bakgrunnur__Uppruni/MAN43000.px/
Wikipedia, Demographics of Iceland: https://en.wikipedia.org/wiki/Demographics_of_Iceland
Vísir. Útlendingum fækkað það sem af er ári: https://www.visir.is/g/20262934796d/ut-lendingum-faekkad-thad-sem-af-er-ari
Gímaldið, Hvað verður um blessuð börnin? https://gimaldid.is/hvad-verdur-um-blessud-bornin/
Hagstofa Íslands, MAN09012 — Mannfjöldaspá: https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Ibuar/Ibuar__mannfjoldaspa/MAN09012.px
Reiknilíkanið, allar forsendur þess og gagnagrunnurinn sem greinin byggir á eru aðgengileg í heild sinni í Excel-skjali sem fylgir greininni á opinaugu.is.








Þessu þarf að snúa við hið snarasta!