Milli 2019 og 2024 voru erlendir ríkisborgarar ákærðir 1,43 sinnum oftar en Íslendingar. Þetta er meðaltal og munurinn er svipaður í öllum brotaflokkum en mjög ólíkur eftir svæðum og löndum. Fyrir menn frá Mið-Austurlöndum og Afríku var tíðnin mun hærri — að minnsta kosti þrisvar til fjórfalt hærri, og í sumum tilfellum allt að nærri sjö sinnum hærri en hjá Íslendingum. Flestir útlendingar koma þó frá Evrópu, þar sem munurinn er mun minni.
Svæði: tíðnin er hæst í Afríku (lágmark 3.681, hámark 6.436) og MENAPT-löndum (lágmark 3.354, hámark 4.647). Evrópa, þar sem 85% erlendra íbúa 15–64 ára búa, er nær meðaltalinu (lágmark 1.334, hámark 1.443).
Lönd: af stærri hópunum eru Litháen (2,39×), Bandaríkin (2,34×) og Lettland (2,20×) hæst, en Pólverjar, fjölmennasti hópurinn, eru nálægt Íslandi (1,07×). Georgía og Albanía eru langhæst, en byggja á fáum íbúum.
Brotaflokkar: munurinn er mestur í umferðarlögum (1,58×) og minnstur í öðrum sérrefsilögum (1,31×);
Aðrir hlutar kerfisins: margfeldið er 2,77× í handtökum, 10,2× í gæsluvarðhaldi 2023–2024 (án mála samkvæmt útlendingalögum 2024: lágmark 5,97×, hámark 8,56×), 1,97× meðal fanga og 9,67× í stórfelldum fíkniefnabrotum.
Aðferð í stuttu máli: teljarinn er ákærðir einstaklingar samkvæmt svari dómsmálaráðherra1, nefnarinn íbúar 15–64 ára samkvæmt Hagstofu Íslands2. Tíðni er fjöldi ákærðra á hverja 100.000 íbúa. Margfeldi er tíðni hópsins deilt með tíðni Íslands, svo 2,00× er tvöföld tíðni Íslands. Nánar um aðferðina og fyrirvara aftast í greininni. Með fylgir einnig excel-skjal með útreikningunum og öllum tölum.
Íslenskt og erlent ríkisfang
Árin 2019–2024 voru 15.138 ákærur skráðar, talið í hverjum brotaflokki fyrir sig: 11.602 hjá einstaklingum með íslenskt ríkisfang og 3.536 hjá erlendum ríkisborgurum. Mynd 1 sýnir þróunina. Ákærðum fækkaði úr 3.246 árið 2019 í 2.250 árið 2024. Fækkunin er nær öll hjá íslenskum ríkisborgurum, sem fóru úr 2.550 í 1.567 (−38,5%), en ákærðir erlendir ríkisborgarar voru nánast jafnmargir, 696 og 683.

Hlutfall erlendra ríkisborgara meðal ákærðra hækkaði úr 21,4% í 30,4% á tímabilinu (Mynd 2). Á sama tíma hækkaði hlutfall þeirra meðal íbúa 15–64 ára úr 15,2% í 21,3%. Hlutfall ákærðra hækkaði því heldur meira en hlutfall íbúa, um 9,0 prósentustig á móti 6,1.

Mynd 3 sýnir tíðni ákæra á hverja 100.000 íbúa 15–64 ára. Tíðnin lækkaði hjá báðum hópum: hjá Íslendingum úr 1.299 í 784 og hjá erlendum ríkisborgurum úr 1.972 í 1.265. Margfeldið var 1,52 árið 2019, lækkaði í 1,28 árið 2021 og hækkaði aftur í 1,62 árið 2023 og 1,61 árið 2024. Fyrir tímabilið í heild er tíðnin 976 hjá Íslendingum og 1.393 hjá erlendum ríkisborgurum, eða 1,43 sinnum hærri.

Munurinn er ólíkur eftir brotaflokki (Mynd 4). Hann er mestur í umferðarlögum, þar sem tíðnin er 341 hjá Íslendingum og 539 hjá erlendum ríkisborgurum, eða 1,58 sinnum hærri. Í almennum hegningarlögum er margfeldið 1,36, í ávana- og fíkniefnalögum 1,34 og í öðrum sérrefsilögum 1,31. Erlendir ríkisborgarar eru því með hærri tíðni í öllum fjórum flokkum. Meðaltal sýnir líka mikinn mun milli landa.

Svæði
Erlendir ríkisborgarar eru ekki einsleitur hópur. Til að sjá hvar munurinn liggur skiptum við löndunum eftir heimsálfum og tökum MENAPT (Mið-Austurlönd, Norður-Afríka, Pakistan og Tyrkland) út sem sérstakan hóp. MENAPT-löndin eru líka talin í Afríku eða Asíu eftir legu sinni, svo þessir hópar skarast og ekki má leggja tölur þeirra saman. Evrópa nær yfir Norðurlönd og önnur Evrópulönd.

Tíðnin er hæst í Afríku og MENAPT-löndunum. Í Afríku er lágmarkstíðnin 3.681 á hverja 100.000 (3,77×) og hámarkstíðnin 6.436 (6,59×). Bilið er breitt vegna þess að 67 færslur eru „<3“ en nákvæmar tölur ná aðeins til 112 ákærðra. Í MENAPT er lágmarkstíðnin 3.354 (3,44×) og hámarkstíðnin 4.647 (4,76×). Norður-Ameríka kemur þar á eftir með lágmarkstíðni 2.203 (2,26×) og hámarkstíðni 2.423 (2,48×).
Evrópa vegur þyngst: þar búa 84,5% erlendra íbúa 15–64 ára. Lágmarkstíðnin er 1.334 (1,37×) og hámarkstíðnin 1.443 (1,48×), og Evrópa ræður því mestu um meðaltal erlendra ríkisborgara í heild (1.393). Í Asíu er lágmarkstíðnin 1.099 (1,13×) og hámarkstíðnin 1.592 (1,63×), en þar eru ólík lönd saman í hóp: MENAPT-löndin í Asíu eru með mun hærri tíðni en hin Asíulöndin, sem eru öll með lægri lágmarkstíðni en Ísland (Mynd 6).
Í Suður- og Mið-Ameríku er lágmarkstíðnin 1.039 (1,06×) en hámarkstíðnin 2.346 (2,40×), því 39 færslur eru „<3“ á móti 23 nákvæmum. Eyjaálfa er minni hópur, með um 80 íbúa 15–64 ára á ári, og er sýnd í öðrum lit. Lágmarkstíðnin þar er 629 og hámarkstíðnin 1.887.
Einstök lönd
Mynd 6 sýnir öll 65 löndin sem eru birt, hvert með lágmarks- og hámarkstíðni. Stærri hóparnir eru rauðir og laxableikir en minni hóparnir, með 30 til 299 íbúa 15–64 ára á ári, eru gulir. Lönd með færri en 30 íbúa eru of fámenn til að vera birt ein og sér. Súlur Georgíu og Albaníu eru styttar, því tíðnin þar er margfalt hærri en annars staðar.

Stærstu hóparnir
24 lönd hafa 300 eða fleiri íbúa 15–64 ára á ári að meðaltali. Samanlagt eru þau 87,2% erlendra íbúa 15–64 ára, og 2.501 ákærðir eru birtir með nákvæmri tölu. Þrjú þeirra eru með meira en tvöfalda tíðni Íslands: Litháen (2.329 á hverja 100.000; 2,39×), Bandaríkin (2.283 á hverja 100.000; 2,34×) og Lettland (2.147 á hverja 100.000; 2,20×). Þar á eftir koma Rúmenía (1.769 á hverja 100.000; 1,81×), Spánn (1.489 á hverja 100.000; 1,53×) og Bretland (1.378 á hverja 100.000; 1,41×). Hjá þessum löndum eru engar „<3“-færslur, svo lágmark og hámark eru jöfn.
Mynstrið er ólíkt milli landa. Í Litháen eru 499 ákærðir, eða 14,1% allra ákærðra erlendra ríkisborgara, en Litháar eru 8,4% erlendra íbúa 15–64 ára. Umferðarlög vega þungt: tíðni þar er 3,42× tíðni Íslands, en 1,91× í almennum hegningarlögum. Hjá Bandaríkjunum eru 105 ákærðir og 78% þeirra í umferðarlögum (margfeldi 5,23×), en í almennum hegningarlögum er margfeldið 0,59×. Í Lettlandi er margfeldið 3,33× í umferðarlögum, og í Rúmeníu 2,15× í almennum hegningarlögum.
Pólverjar eru langfjölmennastir: 39,2% erlendra íbúa 15–64 ára og 29,4% ákærðra erlendra ríkisborgara (1.040 ákærðir). Tíðni þeirra er 1.046 á hverja 100.000, eða 1,07× tíðni Íslands. Í almennum hegningarlögum er hún lægri en á Íslandi (0,79×), í umferðarlögum er margfeldið 1,31× og í ávana- og fíkniefnalögum 1,32×. Þar sem Pólverjar vega svo þungt í hópi erlendra ríkisborgara draga þeir meðaltal erlendra ríkisborgara nær tíðni Íslands.
Af 24 löndum eru 15 með lægri lágmarkstíðni en Ísland og 11 með lægri hámarkstíðni. Lægst er tíðnin meðal Filippseyinga: lágmarkstíðnin er 91 (0,09×) og hámarkstíðnin 274 (0,28×).
Minni hóparnir
41 land hefur færri en 300 íbúa 15–64 ára á ári, en þó að minnsta kosti 30. Samanlagt eru það 10,9% erlendra íbúa 15–64 ára. Hæst eru Georgía og Albanía. Frá Georgíu eru 73 ákærðir og tíðnin 25.795 á hverja 100.000 (26,4×), en íbúum 15–64 ára frá Georgíu fjölgaði úr 25 í 80 á tímabilinu og eru 47 að meðaltali á ári. Af ákærunum eru 43 í almennum hegningarlögum. Frá Albaníu eru 247 ákærðir og tíðnin 25.256 (25,9×), með íbúa 15–64 ára úr 107 í 226. Þar af eru 83 ákærur í ávana- og fíkniefnalögum, og 58 þeirra árin 2023 og 2024. Í svo litlum hópum jafngildir hver einstök ákæra um 353 á hverja 100.000 í Georgíu og 102 í Albaníu, svo tölurnar sveiflast mikið.
Næst á eftir koma eftirtalin lönd. Fyrst er nefnd lágmarkstíðni og síðan hámarkstíðni, en aðeins ein tala ef þær eru jafnar: Sómalía (7.422 og 8.203), Nígería (5.922), Tyrkland (5.369 og 6.040), Pakistan (4.989 og 6.349), Palestína (4.284 og 5.186), Marokkó (3.757 og 4.830) og Íran (3.244 og 3.691). Írak (2.058 og 2.363) og Sýrland (1.982 og 2.265) eru með fleiri íbúa 15–64 ára en flest hinna og lægri tíðni, en samt yfir tvöfaldri tíðni Íslands.
Margfeldi allra landa
Mynd 7 sýnir margfeldið fyrir öll 65 löndin, bæði fyrir alla brotaflokka og fyrir almenn hegningarlög, með lágmarki og hámarki. Löndunum er raðað eftir lágmarksmargfeldi allra brotaflokka og skipt í þrjá hópa, og Ísland og „Allt erlent ríkisfang“ eru sett inn sem viðmið. Græn gildi eru undir Íslandi, gul svipuð og rauð margfalt hærri. Punktur við nafn lands merkir minni hóp.
Almenn hegningarlög sýna annað mynstur en heildin. Hæst eru Georgía (41,2×), Albanía (25,0×), Sómalía (17,0× í lágmarki og 18,0× í hámarki), öll lönd með litla íbúahópa. Á hinn bóginn eru mörg fjölmenn lönd, til dæmis Pólland og Bandaríkin, undir Íslandi í þessum flokki þótt heildartíðnin sé hærri, vegna annarra brotaflokka.

Aðrir hlutar kerfisins
Ákærur eru aðeins eitt skref í ferlinu. Dómsmálaráðherra hefur einnig svarað fyrirspurnum um handtökur3, fanga4, gæsluvarðhald5 og refsingar eftir brotum6. Hér eru helstu tölurnar upp úr þeim gögnum, reiknaðar á sama hátt og áður með íbúa 15–64 ára sem nefnara, svo hægt sé að bera þær saman við ákærur. Tímabilið ræðst af því hvaða gögn eru til.
Margfeldið er 2,77 í handtökum og 1,43 í ákærum. Í gæsluvarðhaldi er það hæst: 12,76 árið 2023 og 8,56 árið 2024. Meðal fanga, bæði í afplánun og gæsluvarðhaldi, er margfeldið 1,97 að meðaltali árin 2020–2024, en það hækkar úr 1,23 árið 2021 í 2,73 árið 2024. Hlutfall erlendra ríkisborgara meðal fanga var 14% árið 2014, 21% árið 2019 og 42% árið 2024.

Þessar tölur þarf að túlka með varúð. Samkvæmt ríkislögreglustjóra segir ríkisfang ekki til um búsetu, og í tölum um handtökur geta verið ferðamenn og aðrir sem dvelja hér stutt. Dómsmálaráðuneytið nefnir einnig aukinn þunga skipulagðrar brotastarfsemi, synjanir um inngöngu og ólögmæta dvöl sem ástæður þess að kröfum um gæsluvarðhald hefur fjölgað.
Gæsluvarðhaldið nær líka til mála samkvæmt lögum um útlendinga, sem aðeins erlendir ríkisborgarar geta lent í. Þegar þau eru dregin frá fæst bil en ekki ein tala: lágmarkið dregur frá allt sem gæti hafa verið vegna útlendingalaga, hámarkið ekkert. Árið 2024 voru 63 af 208 erlendum ríkisborgurum úrskurðaðir á þeim grundvelli. Margfeldið án þeirra er 5,97 í lágmarki og 8,56 í hámarki (Mynd 8).
Fyrir 2023 liggur þessi skipting ekki fyrir. Heimferða- og fylgdadeild lögreglu (HOF) annaðist það ár 216 verkefni7. Séu framsöl (16), brottvikningar fanga eða manna með sakaferil (40) og fylgdir vegna ólögmætrar dvalar (33) dregin frá standa 127 eftir. Það er mat á mesta fjölda sem gæti hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna útlendingalaga einna saman. Sé allt það dregið frá 182 erlendum ríkisborgurum standa 55 eftir, á móti 59 Íslendingum (48,2% erlendir), og margfeldið er 3,85. Það er lágmarkið; hámarkið er 12,76 ef ekkert er dregið frá. Talan 127 er forsenda en ekki staðfest hámark: verkefnin eru ekki endilega einstaklingar og ekki er víst að allir hafi setið í gæsluvarðhaldi. Til viðmiðunar: sama hlutfall útlendingalaga og 2024 (30%) gæfi margfeldið 8,9.
Munurinn er líka ólíkur eftir brotum. Mynd 9 sýnir refsingar sem bárust Fangelsismálastofnun til fullnustu árin 2019–2023, eftir aðalbroti hverrar refsingar. Stórfelld fíkniefnabrot samkvæmt 173. gr. a skera sig úr: 125 af 189 refsingum, eða 66,1%, voru hjá erlendum ríkisborgurum, og margfeldið er 9,67 (neðri mörk 7,15, efri mörk 13,07). Í öðrum fíkniefnabrotum er það 1,25 og í nauðgunum (194. gr.) 1,98, með neðri mörk 1,18.
Í brotum gegn börnum (201., 202. og 210. gr. a) eru erlendu refsingarnar 10 af 67, eða 14,9%, en erlendir ríkisborgarar eru 16,8% íbúa 15–64 ára. Margfeldið er 0,87, en öryggismörkin ná yfir 1,00× (neðri mörk 0,44, efri mörk 1,70). Fjöldinn er of lítill til að segja til um mun milli hópa, og hið sama á við um önnur kynferðisbrot og kynferðisbrot í heild.

Munurinn er mestur í stórfelldum fíkniefnabrotum og gæsluvarðhaldi. Refsingarnar eru taldar eftir aðalbroti og eru ekki fjöldi einstaklinga.
Gæsluvarðhaldið er misskipt eftir löndum8. Frá Georgíu sátu 94 manns í gæsluvarðhaldi árin 2019–2025, þótt íbúar 15–64 ára frá Georgíu séu aðeins 54 á ári að meðaltali, og 120 frá Albaníu þótt þeir séu 175. Pólverjar eru 120, Litháar 70, Spánverjar 66 og Rúmenar 46. Íslendingar eru 477, eða 34 á hverja 100.000 mannár. Gæsluvarðhald nær líka til mála samkvæmt útlendingalögum og til fólks án búsetu hér (5, 6), svo tíðnin er ekki mælikvarði á brotatíðni.

Af 327 erlendum ríkisborgurum sem hófu afplánun í fangelsi árin 2020–20259 voru 249 (76%) frá Evrópu. Miðað við íbúafjölda er tíðnin þó hæst meðal Afríku (474 á hverja 100.000 mannár) og Suður- og Mið-Ameríku (361), og síðan Norður-Ameríku (207) og MENAPT-löndum (180). Frá Evrópu eru það 108 og frá Asíu 47 (Mynd 11). Fjöldinn að baki er lítill utan Evrópu, 12 til 27 manns á hvert svæði, svo tíðnin sveiflast mikið. Frá Eyjaálfu (um 79 íbúar á ári) hóf enginn afplánun.

Aðferðin
Teljarinn: ákærðir einstaklingar
Teljarinn kemur úr svari dómsmálaráðherra á 157. löggjafarþingi. Þar eru birtar tölur um einstaklinga sem voru ákærðir hvert árið 2019–2024 eftir ríkisfangi og fjórum brotaflokkum: almennum hegningarlögum, umferðarlögum, ávana- og fíkniefnalögum og öðrum sérrefsilögum. Sami einstaklingur getur talist í fleiri en einum flokki sama ár, og ákæra er ekki sakfelling. Í greininni er því talað um ákærur og ákærða, ekki um brotamenn.
Þegar fjöldi er lægri en þrír er hann birtur sem „<3“, og Þingskjalið skilgreinir það sem „þrír eða færri“. Við teljum hverja slíka færslu sem einn ákærðan í lágmarkstölu og þrjá í hámarkstölu. Í gögnunum eru 288 slíkar færslur. Þess vegna fær hvert land og svæði tvær tölur, lágmark og hámark, sem eru jafnar þegar engin færsla er falin.
Nefnarinn: íbúar 15–64 ára
Nefnarinn er fjöldi íbúa 15–64 ára með viðkomandi ríkisfang 1. janúar hvers árs samkvæmt töflu MAN04103 hjá Hagstofu Íslands, lagður saman yfir árin sex. Þessi samtala er kölluð mannár og mælir stærð hópsins yfir allt tímabilið. Meðalfjöldi íbúa á ári er mannárin deilt með sex.
Aldurshópurinn 15–64 ára er valinn vegna þess að aldurssamsetning hópanna er afar ólík: 85,4% erlendra ríkisborgara eru á aldrinum 15–64 ára en aðeins 62,9% þeirra sem hafa íslenskt ríkisfang. Væru allir aldurshópar notaðir virtist tíðni erlendra ríkisborgara 1,94 sinnum hærri en Íslendinga; miðað við íbúa 15–64 ára er margfeldið 1,43. Allir aldurshópar fylgja með í Excel-skjalinu sem aukaupplýsingar.
Hvaða lönd og svæði eru birt
Tíðni lítilla hópa er mjög viðkvæm fyrir einstökum tilvikum. Löndum er því skipt í flokka eftir stærð íbúahópsins, mældri sem meðalfjöldi íbúa 15–64 ára á ári. Flokkunin byggir eingöngu á íbúafjölda: fjöldi ákæra hefur engin áhrif á það hvort land er birt.
Mjög marktækt: 1.000 eða fleiri íbúar á ári (7 lönd).
Marktækt: 300 til 999 íbúar á ári (17 lönd).
Minni hópar: 30 til 299 íbúar á ári (41 land). Þessi lönd eru birt eins og hin, en sýnd í öðrum lit.
Ómarktækt: færri en 30 íbúar á ári (42 lönd). Þau eru ekki birt ein og sér.
Samkvæmt þessu eru 65 lönd birt. Hin 42 löndin eru of fámenn til að vera birt ein og sér, en þau eru talin með í svæði sínu, þar sem samanlagður hópur er stærri. Eitt land til viðbótar hefur engan íbúa 15–64 ára á tímabilinu. Svæði eru reiknuð með sömu reglum og einstök lönd. Ríkisfangslausir eru ekki í neinu svæði en eru sýndir sem eitt land á Mynd 6.
Excel-skjal með útreikningum á ákærum fyrir öll lönd, svæði, brotaflokka og ár, og tölum um aðra hluta kerfisins, fylgir greininni.
Alþingi. Þingskjal 748, 157. löggjafarþing 2025–2026, 94. mál. Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur. https://www.althingi.is/altext/157/s/0748.html
Hagstofa Íslands. MAN04103: Mannfjöldi eftir ríkisfangi, kyni og aldri 1. janúar 1998–2026. https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Ibuar/Ibuar__mannfjoldi__3_bakgrunnur__Rikisfang/MAN04103.px
Alþingi. Þingskjal 1532, 157. löggjafarþing 2025–2026, 515. mál. Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur um fjölda handtekinna með erlent ríkisfang. https://www.althingi.is/altext/157/s/1532.html
Alþingi. Þingskjal 403, 156. löggjafarþing 2025, 113. mál, og Þingskjal 934, 478. mál. Svör dómsmálaráðherra við fyrirspurnum Diljár Mistar Einarsdóttur um erlenda fanga og fjölda fanga. https://www.althingi.is/altext/pdf/156/s/0403.pdf
Alþingi. Þingskjal 751, 156. löggjafarþing 2025, 196. mál. Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar um erlenda ríkisborgara í fangelsum. https://www.althingi.is/altext/pdf/156/s/0751.pdf
Alþingi. Þingskjal 2200, 154. löggjafarþing 2023–2024, 897. mál. Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um ríkisfang brotamanna. https://www.althingi.is/altext/pdf/154/s/2200.pdf
Alþingi. Þingskjal 1536, 157. löggjafarþing 2025–2026, 509. mál. Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Karls Gauta Hjaltasonar um fjölda gæsluvarðhalds- og afplánunarfanga. https://www.althingi.is/altext/pdf/157/s/1536.pdf
Alþingi. Þingskjal 446, 157. löggjafarþing 2025–2026, 117. mál. Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur um erlenda fanga. https://www.althingi.is/altext/pdf/157/s/0446.pdf

